Aðgangsstaðir
Hægt er að fá aðgangsstaðastillingar í skilaboðum frá
þjónustuveitu. Sjá „Gögn og stillingar” á bls. 62. Sumir
eða allir aðgangsstaðir gætu verið forstilltir fyrir tækið
af þjónustuveitunni og því er ekki víst að hægt sé að breyta
þeim, búa þá til eða fjarlægja.
táknar varinn
aðgangsstað og
táknar aðgangsstað fyrir pakkagögn.
Til að búa til nýjan aðgangsstað skaltu velja
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
. Veldu
Nota sjálfv. stillingar
til
að nota stillingar á sjálfgefnum aðgangsstað eða
Nota
gildandi stillingar
til að velja gildandi aðgangsstað sem
grunn fyrir nýjan aðgangsstað.
Stillingum aðgangsstaðar er breytt með því að velja
Valkostir
>
Breyta
. Fylgdu leiðbeiningum
þjónustuveitunnar.
Nafn tengingar
—Gefðu tengingunni lýsandi heiti.
Flutningsmáti
—Veldu gerð gagnatengingarinnar.
Það hvaða stillingareiti er hægt að velja fer eftir því hvaða
gagnatenging er valin. Fylltu út alla reiti sem eru merktir
með
Þarf að skilgr.
eða rauðri stjörnu. Ekki þarf að fylla
út aðra reiti nema þjónustuveitan hafi tekið það fram.
Til að geta komið á gagnatengingu verður
símafyrirtækið að styðja það og, ef með þarf,
virkja hana fyrir SIM-kortið þitt.
Pakkagögn
Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Nafn aðgangsstaðar
—Þú færð heiti aðgangsstaðarins
hjá þjónustuveitunni.
Notandanafn
—Nauðsynlegt getur verið að slá inn
notandanafn til að koma á gagnatengingu og það
fæst yfirleitt hjá þjónustuveitunni.
Biðja um lykilorð
—Ef þú þarft að slá inn lykilorðið í hvert
skipti sem þú tengist við miðlara eða ef þú vilt ekki vista
lykilorðið í tækinu skaltu velja
Já
.
Lykilorð
—Nauðsynlegt getur verið að nota lykilorð til
að koma á gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá
þjónustuveitunni.
Aðgangskort
—Veldu
Venjulegt
eða
Öruggt
.
Heimasíða
—Sláðu inn veffangið eða númer
skilaboðamiðstöðvar margmiðlunarskilaboða,
eftir því hvaða aðgangsstað þú vilt setja upp.
Veldu
Valkostir
>
Frekari stillingar
til að breyta
eftirfarandi stillingum:
Gerð símkerfis
—Veldu hvaða internetsamskiptareglur eru
notaðar:
IPv4
eða
IPv6
. Aðrar stillingar velta á því hvaða
gerð af símkerfi þú velur.
IP-tala símans
(aðeins fyrir IPv4)—Sláðu inn IP-tölu tækisins.
Stillingar
117
DNS-veffang
—Sláðu inn IP-tölu aðalnafnamiðlarans
í
Fyrra DNS-veffang
. Sláðu inn IP-tölu
aukanafnamiðlarans í
Síðara DNS-veffang
.
Vefföngin fást hjá internetþjónustunni.
Veff. proxy-miðlara
—Tilgreindu veffang proxy-miðlarans.
Númer proxy-gáttar
—Sláðu inn gáttarnúmer
proxy-miðlarans.